SKILMÁLAR FYRIR NOTENDUR SJÓVINNU

Þessar skilmálar fyrir Sjóvinnu (hér eftir ,,skilmálarnir”) eru óaðskiljanlegur hluti samningsins milli notenda og Sjóvinnu ehf., kt., Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi (hér eftir ,,Sjóvinna”) Með því að nota þjónustu sem Sjóvinna veitir lýsir notandinn því yfir að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni. Óheimilt er að nota þjónustu Sjóvinnu án þess að samþykkja skilmálana.

1. SKILGREININGAR

1. Nema sérstaklega sé kveðið á um annað í þessum skilmálum hafa eftirgreind orð í skilmálunum þá merkingu sem hér segir:

2. ,,Sjóvinna“ er kerfi sem býður notendum þess upp á einfalda og nútímalega lausn til að skoða og fylgjast með atvinnuauglýsingum, hafa umsjón með eigin ferilskrám og sækja um tiltæk störf sem eru auglýst og býður fyrirtækjum lausn þar sem þau geta auglýst störf, tekið á móti atvinnuumsóknum frá
notendum, unnið úr umsóknum og átt samskipti við umsækjendur;

3. ,,Umsækjandi” er notandi sem hefur sótt um starf í gegnum Sjóvinnu.

4. ,,Fyrirtæki” er fyrirtæki, stofnun eða einstaklingur sem auglýsir störf á Sjóvinnu og fær umsóknir frá notendum. Hugtakið fyrirtæki
í skilmálunum nær einnig til fyrirtækjaheita nema annað sé sérstaklega tekið fram og merkir fyrirtækjaheiti í þessu sambandi
einstaklinga sem stunda atvinnurekstur, óháð því hvort slíkir einstaklingar starfa undir eigin kennitölu eða hafi um þann rekstur félagaform;

5. ,,Gagnagrunnur” er samansafn hvers kyns efnis sem er raðað á kerfisbundinn eða aðferðafræðilegan hátt og er aðgengilegt með
rafrænum hætti eða öðrum hætti, óháð birtingarformi þess og búið hefur verið til af Sjóvinnu., í skilningi laga nr. 73/1972
(,,höfundarréttarlögin”), sérstaklega gagnagrunnur um atvinnutilboð og notendasnið;

6. ,,Notandasnið” er snið (prófíll) notanda Sjóvinnu eða upplýsingasíða fyrirtækis hjá Sjóvinnu, sem inniheldur allar
upplýsingar um notandann eða fyrirtækið og byggir á upplýsingum sem notandinn eða fyrirtækið hefur veitt í gengum
samfélagsmiðlaaðgang sinn eða hafa verið skráðar sérstaklega af notanda eða fyrirtækinu;

7. ,,Samfélagsmiðlaaðgangur” merkir hvers kyns aðgang notandans eða fyrirtækisins að samfélagsmiðlum, sem notandinn eða félagið
notar til að afla gagna fyrir notendasnið þeirra (eins og Facebook, Google eða annað); og

8. ,,Notandi” er einstaklingur sem notar Sjóvinnu, óháð því hvort hann hefur skráð þar persónuupplýsingar eða ekki.

 

2. NOTKUN AF NOTANDA

1. Notkun á Sjóvinnu af notanda samanstendur af því að skoða atvinnuauglýsingar frá fyrirtækjum, fylgjast með lausum störfum, starfshlutfalli og staðsetningu atvinnu, uppfærslu eigin upplýsinga um starfsferil, hæfni og aðra kunnáttu sem skilgreind er í notandasniði notanda, umsóknir um störf eða hvers konar önnur samskipti við fyrirtæki eða önnur samskipti við Sjóvinnu.

2. Öll notkun Sjóvinnu af notanda er takmörkuð við almenna og löglega starfsemi og er aðeins fyrir notandann sjálfan. Notanda er eingöngu heimilt að nálgast og nota upplýsingar sem tengjast honum sjálfum og störfum sem auglýst eru af fyrirtækjum. Notanda er óheimilt að reyna að fá aðgang að og nota upplýsingar sem ætlaðar eru öðrum.

 

3. AÐGANGUR FYRIR NOTANDA

1. Eftirfarandi þrjár gerðir aðgangs eru í boði fyrir notandann:

2. Innskráning með félagsmiðlum. Notandinn er innskráður gegnum samfélagsmiðlaaðgang. Með því að skrá sig inn samþykkir notandinn skilmálana og samþykkir þar með að veita Sjóvinnu og Sjóvinnu ehf. aðgang að eftirfarandi upplýsingum sem hann kann að hafa veitt á félagsmiðlaaðgangi sínum: Nafni, mynd, netfangi, símanúmeri, kyni, fæðingardegi, "um" texta, hæfni og starfsreynslu. Upplýsingarnar eru aðeins sóttar þegar notandinn skráir sig í fyrsta sinn, til að flýta fyrir skráningu nauðsynlegra upplýsinga um notandann í notendasniði hans. Ef notandi uppfærir upplýsingar sínar á samfélagsmiðlaaðgangi uppfærast upplýsingarnar ekki sjálfkrafa í Sjóvinnu. Ef framangreindar upplýsingar eru ekki að finna á notendasamfélagsreikningi notandans verður notandinn beðinn um frekari upplýsingar þegar sótt er um starf.

3. Innskráning með símanúmeri. Símanúmer notandans og SMS staðfestingarkóði eru notuð þegar notandinn stofnar notandasnið sitt. Með því að skrá sig inn samþykkir notandinn skilmálana. Notandinn verður að skrá sjálfur inn persónuupplýsingar í notandasnið sitt og verður beðinn um frekari upplýsingar þegar sótt er um starf.

4. Innskráning án aðgangs. Með þessu er aðeins hægt að skoða auglýsingar sem eru til staðar í Sjóvinnu og fylgjast með ákveðnum starfstegundum, starfshlutfalli og staðsetningum starfa samkvæmt vali notanda. Með því að nota Sjóvinnu samþykkir
notandinn skilmálana. Það skal tekið fram að val notandans í þessu tilviki til að fylgjast með störfum er aðeins vistað í tæki notandans og flyst því ekki í annað tæki ef notandi skiptir um tæki.

4. UMSÓKNARFERLI

1. Hafi notandi áhuga á að sækja um starf getur hann sent umsókn til fyrirtækis með þeim upplýsingum sem þegar eru til staðar í notandasniðinu ásamt þeim viðbótarupplýsingum sem fyrirtækið hefur óskað eftir og frekari upplýsingum sem notandinn vill sjálfur koma á framfæri. Fyrirtækið getur haft samband við umsækjanda í gegnum Sjóvinnu, m.a. til að óska eftir frekari upplýsingum í tengslum við vinnslu fyrirtækisins á atvinnuumsókn eða til að bjóða umsækjanda í viðtal. Telji starfsmenn fyrirtækis umsækjanda einnig hæfan í annað starf innan félagsins, s.s. í annarri deild eða einingu, er þeim heimilt að senda umsóknina áfram til starfsmanna viðkomandi deildar eða einingar innan félagsins. Í framhaldinu hefst hefðbundin úrvinnsla í þeirri deild eða einingu og getur umsækjandi verið boðaður í viðtal eða frekari gagna óskað.

2. Umsækjandi getur afturkallað umsókn sína hvenær sem er með því að hafa samband við sjóvinnu í gegnum sjovinna@sjovinna.is.

3. Umsókn er aðgengileg fyrir fyrirtæki í Sjóvinnu í eitt ár frá því að umsækjandi sendir fyrirtæki umsókn nema umsækjandi loki aðgangi sínum áður eða dragi til baka umsókn sína frá fyrirtækinu.

4. Fyrirtækið og umsækjandinn geta átt samskipti sín á milli í umsóknarvinnslukerfi Sjóvinnu. Hægt er að senda skilaboð á milli og fyrirtækið getur boðið umsækjanda í viðtal og/eða hafnað umsókn hans. Fyrirtækið og umsækjandinn bera ábyrgð á öllum samskiptum sem kunna að eiga sér stað þeirra á milli, óháð því hvaða aðferð er notuð við samskiptin og hvort þau fara í gegnum Sjóvinnu eða ekki.

5. PERSÓNUUPPLÝSINGAR

1. Innskráningarupplýsingar notandans eru annaðhvort aðgangsauðkenni hans fyrir samfélagsmiðlaaðgang eða símanúmer hans ásamt SMS staðfestingarkóða sem er sendur til notandans frá Sjóvinnu við fyrstu innskráningu. Innskráningarupplýsingar eru ekki geymdar í Sjóvinnu; Hins vegar gæti símanúmerið verið geymt.

2. Notandinn sjálfur er ábyrgur fyrir því að geyma innskráningarupplýsingar sínar og halda þeim leyndum. Verði notandi var við óeðlilega notkun eða að óviðkomandi hafi komist yfir innskráningarupplýsingar hans er það á ábyrgð notandans að gera viðeigandi ráðstafanir, svo sem að loka notandaaðgangi sínum og hindra aðgang viðkomandi að Sjóvinnu eða með því að hafa samband við Sjóvinnu í gegnum tengiliðasvæðið á heimasíðu eða gegnum sjovinna@sjovinna.is

3. Allar upplýsingar um notandann eru geymdar með rafrænum hætti í gagnagrunni og er um að ræða upplýsingar sem notandinn hefur skráð eða skráðar hafa verið af notandanum beint hjá Sjóvinnu.

4. Sjóvinna ehf. er vinnsluaðili í tengslum við persónuupplýsingar notanda sem gefnar eru upp í notendasniði. Réttindi og skyldur Sjóvinnu ehf. í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga koma fram í persónuverndarstefnu. Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga notanda og hvernig Sjóvinna ehf. fer með persónuupplýsingar er að finna þar.

5. Ef notandi ákveður að sækja um starf hjá fyrirtæki, þá verður fyrirtækið sjálfstæður vinnsluaðili þeirra persónuupplýsinga umsækjanda sem er að finna í umsókninni og notendasniði umsækjanda. Sjóvinna ehf. er ekki ábyrgt fyrir því hvernig það fyrirtæki vinnur úr persónuupplýsingum umsækjanda.

6. Fyrirtæki er óheimilt að afrita upplýsingar um umsækjendur úr Sjóvinnu inn í önnur kerfi og nota þær í öðrum tilgangi en sem hluta af umsóknarferli þeirrar atvinnu sem umsækjandi sótti um. Félagið skal meðhöndla upplýsingar um umsækjanda þannig að gætt sé fyllsta öryggis og trúnaðar og fylgja lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, með áorðnum breytingum og reglugerð (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsan flutning á slíkum gögnum.

6. RÉTTINDI OG TAKMARKANIR

1. Sjóvinna ehf. er höfundur gagnagrunnsins og er áskilinn öll réttindi höfundar gagnagrunns í samræmi við 42. gr. og 50. gr. höfundarréttarlaganna.

2. Notanda er skylt að veita Sjóvinnu ehf. eingöngu réttar, sannar og fullnægjandi upplýsingar, þ.m.t. persónuupplýsingar og skrá sig undir sínu eigin nafni.

3. Notandi skuldbindur sig til að eiga samskipti við fyrirtæki og Sjóvinnu og almennt nota Sjóvinnu á viðeigandi hátt og í samræmi við góða siði og venjur. Óheimilt er að dreifa hatursáróðri, ólöglegu eða óviðeigandi efni í gegnum Sjóvinnu. Leiki vafi á getur Sjóvinna. ákveðið hvort efni hafi að geyma hatursáróður, sé ólöglegt eða óviðeigandi og gera viðeigandi ráðstafanir.

4. Notanda er óheimilt að:
 1. draga út eða endurnýta í heild eða að hluta gögn eða upplýsingar sem safnað úr gagnagrunninum í þeim tilgangi að gera slíkt hluta af öðrum gagnagrunnum
(,,Skjáskröpun”);
2. endurgera hugbúnaðinn sem Sjóvinna byggir á á nokkurn hátt, þ.m.t. að gera afrit;
3. dreifa hugbúnaðinum;
4. birta eða gefa út hugbúnaðinn;
5. þýða, aðlaga, raða eða breyta hugbúnaðinum á nokkurn
hátt;
6. hnýsast í innviði (reverse engineering), afkóða, taka sundur
eða reyna að komast yfir forritunarkóðann á annan hátt;
7. reyna að brjóta öryggisvarnir forritsins eða ráðast á forritið
á annan hátt;
8. reyna að fá aðgang að hlutum Sjóvinnu sem notandinn
hefur ekki rétt á að fá aðgang að eða er ekki með leyfi frá
Sjóvinnu ehf. til þess;
9. koma í kring yfirálagi á þjónustuna með sjálfvirkninotkun;
10. að öðru leyti nota Sjóvinnu í ósamræmi við tilgang
þess, eða;
11. brjóta gegn höfundarrétti Sjóvinun ehf. samkvæmt 8.
gr. skilmálanna.

5. Notanda er skylt að tilkynna Sjóvinnu um öryggisbresti í Sjóvinnu sem hann kann að uppgötva við notkun á Sjóvinnu.

6. Í því skyni að koma í veg fyrir að brotist sé inn í aðgang notanda er notandi einnig skyldugur til að:
1. verja öll tæki gegn misnotkun;
2. setja upp öruggar innskráningarupplýsingar;

3. nota ekki aðgangsauðkenni sem notuð eru af þriðja aðila;
4. vernda aðgangsauðkenni sín; og
5. koma í veg fyrir misnotkun aðgangsauðkennis.
7. Komi upp galli við notkun á Sjóvinnu getur notandinn haft samband við Sjóvinnu. í gegnum tengiliðasvæðið á heimasíðu Sjóvinnu. Sjóvinna ehf. eða viðurkenndur starfsmaður fyrirtækisins tekur ákvörðun án tafar um hvernig skuli brugðist við tilkynningu um slíkt. Notanda er ljóst og samþykkir að það gæti tekið Sjóvinnu ehf. nokkurn tíma, eftir því hvaða þjónusta er nauðsynleg, að meta gallann m.t.t. faglegra viðbragða.

8. Notandinn óskar hér með eftir og heimilar Sjóvinnu ehf. að leita, draga út og nýta allar upplýsingar sem tengjast atvinnutilboðum sem gætu verið áhugaverðar fyrir notandann úr öðrum gagnagrunnum, þar með töldum ótengdum gagnagrunnum, og setja þær inn í Sjóvinnu.

7. TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR

1. Sjóvinna ehf. ber ekki ábyrgð á umsóknarferlinu eða þeim árangri sem næst með því að nota Sjóvinnu þar sem umsóknarferlið er alfarið á ábyrgð félagsins og öllum fyrirspurnum um ferlið skal beint til viðkomandi fyrirtækis. Sjóvinna ehf. er ekki ábyrgt fyrir útgjöldum eða öðrum kostnaði sem notandinn kann að verða fyrir ef félag ákveður að segja starfsmanni upp störfum, hætta við viðtal eða draga til baka tilboð um starf.

2. Sjóvinna ehf. ber ekki ábyrgð á því sé brotið gegn réttindum annarra sem búa til gagnagrunna til að nota aðra þannig gagnagrunna í samræmi við fyrirmæli notandans skv. 6.8.

3. Sjóvinna ehf. ber ekki ábyrgð á því ef tilkynningar frá Sjóvinnu reynast gallaðar, þeim seinkar eða ef notandinn fær þær ekki yfir höfuð. Sjóvinna ehf. mun reyna eftir fremsta megni að tryggja að allar tilkynningar berist innan þeirra tímamarka sem gera má kröfu um.

4. Sjóvinna ehf. ber ekki ábyrgð á efni starfsauglýsinga frá fyrirtækjum eða lögmæti þeirra. Sjóvinna ehf. er ekki ábyrgt fyrir mistökum, röngum dagsetningum og/eða öðrum upplýsingum sem fyrirtæki skráir við stofnun auglýsinga.

5. Sjóvinna ehf. ber ekki ábyrgð á efni ráðningarsamninga eða því hvort ráðning starfsmanns samræmist lögum, t.d. sé í samræmi við gildandi vinnulöggjöf, jafnfréttislög eða ákvæði laga um ráðningar barna og ungmenna.

6. Sjóvinna ehf. er ekki ábyrgt fyrir óþægindum eða skemmdum sem kunna að verða vegna bilana eða galla í Sjóvinnu, svo sem vélrænni bilun, tæknilegum mistökum, bilun í hugbúnaði, kerfisuppfærslu, galla í stýrikerfum, netkerfum eða fjarskiptakerfum eða vegna rofs á þjónustu Sjóvinnu vegna rafmagnsbilunar eða truflana á fjarskiptaþjónustu.

7. Notandinn veitir Sjóvinnu ehf. og fyrirtækjum upplýsingar og sækir um störf á eigin ábyrgð. Sjóvinna ehf. ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að eiga sér stað vegna þriðja aðila sem fær upplýsingar um notandann í Sjóvinnu með ólögmætum hætti, sérstaklega með aðgangsbrotum (e. hacking). Enn fremur er Sjóvinna ehf. ekki ábyrgt fyrir því hvernig fyrirtæki meðhöndlar umsóknir og upplýsingar sem umsækjandi veitir í umsóknarferlinu.

8. Sjóvinna ehf. er ekki ábyrgt vegna óviðráðanlegra atvika (force majure) sem geta leitt til þess að þjónusta Sjóvinnu verði óaðgengileg, svo sem vegna ákvarðana stjórnvalda, náttúruhamfara, verkfalla (þ.m.t. fyrirhuguð verkföll) eða verkbanna, uppreisna, uppþota, skemmdarverka, hryðjuverka eða stríða eða vegna annarra svipaðra atburða sem ekki er hægt að koma í veg fyrir eða ráða við með venjulegum hætti af hálfu Sjóvinnu ehf.

9. Ef Sjóvinna bilar eða liggur niðri, kann þjónustan að verða tímabundið óaðgengileg fyrir notandann án réttar hans til bóta.

10. Notandinn er meðvitaður um og samþykkir þær ábyrgðartakmarkanir sem tilgreindar eru í þessari grein.

11. KOMI TIL ÞESS AÐ SJÓVINNA EHF. VERÐI TALINN BERA EINHVERJA TJÓNSÁBYRGÐ GAGNVART NOTANDA ERU AÐILAR ÁSÁTTIR UM AÐ SJÓVINNA EHF. SKULI AÐEINS GREIÐA SEM SAMSVARAR 5 EVRUM (EUR) Í BÆTUR. ÞESSI TAKMÖRKUN GILDIR EKKI UM DAUÐSFÖLL, LÍKAMSTJÓN EÐA TJÓN SEM VALDIÐ ER AF ÁSETNINGI.

8. HUGVERKARÉTTUR

1. Allt efni á vefsíðu Sjóvinnu og Sjóvinnu ehf., svo sem hönnun, texti, grafík, myndir, ljósmyndir, upplýsingar, vörumerki Sjóvinnu ehf., tákn, tölvuforrit, frumkóði, gagnasöfn og önnur hugverk tilheyra eingöngu Sjóvinnu ehf. og/eða samstarfsaðilum og dótturfélögum og njóta verndar laga um höfundarrétt og hugverkaréttindi. Óleyfileg notkun, þ.m.t. afritun, fjölföldun og/eða dreifing á þessu efni, hvort sem er að hluta eða í heild, kann að brjóta gegn lögum og er óheimil án leyfis Sjóvinnu ehf. Með því að samþykkja þessa skilmála og nota Sjóvinnu veitir Sjóvinna ehf. notandanum eða félagi á engan hátt leyfi til að nota hugverkaréttindin á nokkurn hátt nema í mesta lagi til þess sem nauðsynlegt getur talist til að sækja um störf eða bjóða störf í gegnum Sjóvinnu og til að hafa umsjón með starfsumsóknum notenda eða félagsins.

9. BROT Á SKILMÁLUM

1. Verði notandi uppvís að alvarlegum brotum á skilmálum þessum og/eða misnotar Sjóvinnu á einhvern hátt áskilur Sjóvinna ehf. sér rétt til þess að loka aðgangi viðkomandi notanda að Sjóvinnu án fyrirvara og banna notandasnið notanda tímabundið eða ótímabundið og/eða eyða notandasniði notanda. Sama gildir ef notandi hagar sér með ólögmætum eða óviðeigandi hætti.

2. Alvarlegt brot á skilmálum þessum telst vera sérstaklega það ef notandi:
1. sendir eða á annan hátt deilir upplýsingum sem brjóta gegn lögum eða skilmálunum eða gætu skaðað velvild og orðspor Sjóvinnu ehf.;
2. brýtur gegn skyldum sínum sem eru tilgreindar eru í ákvæði

3. býr til notandasnið í Sjóvinnu sem byggir á óleyfilegri skráningu, einkum persónu sem ekki er til eða er tilbúningur eða notar við skráningu upplýsingar frá þriðja aðila án samþykkis þess aðila eða

4. dreifir hatursfullu, ólöglegu eða óviðeigandi efni í gegnum Sjóvinnu.

3. Sjóvinna ehf. áskilur sér rétt til að fjarlægja alla hatursorðræðu,
ólöglegt og óviðeigandi efni úr Sjóvinnu án fyrirvara.
4. Leiki grunur á að notandi hafi viðhaft ólögmæta háttsemi áskilur
Sjóvinna ehf. sér rétt til að upplýsa viðeigandi yfirvöld um slíkt.

10. BREYTINGAR Á SKILMÁLUM

1. Sjóvinna ehf. áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálunum, sérstaklega með tilliti til lagabreytinga á sviði persónuverndar eða vinnulöggjafar, tækniframfara, umfangs þjónustu Sjóvinnu eða breytinga á verði birgja, m.a. í tilliti upplýsinga sem krafist er í notandasniði, verðlagningar og greiðsluskilmála fyrir þjónustuna sem er að finna í skilmálunum, leyfisveitinga og/eða hugverkaréttinda, starfsumsóknarferli eða umfangs þjónustu sem veitt er hér að neðan. Sjóvinna ehf. mun tilkynna um skilmálabreytingar í gegnum netfangið sitt, með tilkynningu í Sjóvinnu eða með tilkynningu sem er send er í símanúmer notandans og með því að gera nýju skilmálana aðgengilega á vefsíðu Sjóvinnu ehf. Hafni notandinn ekki breytingu á skilmálum innan 15 daga frá því að hann fékk um það tilkynningu með tölvupósti, í gegnum Sjóvinnu eða í síma, eftir því hvað honum barst fyrst, samþykkir notandinn hina breyttu skilmála. Hafni notandinn hinum breyttu skilmálum innan framangreinds tímabils, telst sú höfnum jafngilda uppsögn á þjónustu Sjóvinnu með 15 daga fyrirvara og gilda á því tímabili þeir skilmálar sem síðast voru í gildi milli aðila með samþykki beggja.

11. LOK ÞJÓNUSTU

1. Notandi hefur rétt til að segja upp þjónustu Sjóvinnu vilji hann ekki lengur nota Sjóvinnu. Í slíkum tilvikum skal notandinn tilkynna Sjóvinnu ehf. það með því að loka notandasniðinu í stillingunum eða senda tölvupóst á sjovinna@sjovinna.is. Tilkynning frá notandanum um að hann vilji ekki lengur nota Sjóvinnu mun leiða til þess að umsóknir notenda í gegnum Sjóvinnu verða um leið dregnar til baka þar sem upplýsingar um notandann hverfa úr Sjóvinnu.

2. Sjóvinna ehf. hefur rétt til að segja upp þjónustu Sjóvinnu með 15 daga fyrirvara sem hefst á þeim degi er notanda berst tilkynning um uppsögn.

3. Uppsögn Sjóvinnu á þjónustu leiðir til lokunar og eyðingar á notandasniði notanda. Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarstefnu Sjóvinnu.

4. Ákvæði sem ætlað er að gilda lengur, jafnvel eftir að þjónustu Sjóvinnu og samningi hefur verið sagt upp, halda gildi sínu. Ákvæði 1, 4.4, 5, 6.1, 6.3, 6.4, 7, 11.4, 13, 14, 15 og 16 sérstaklega halda gildi sínu þrátt fyrir uppsögn þjónustunnar og samnings.

12. EIGENDASKIPTI AÐ SJÓVINNU

1. Sjóvinnu ehf. er heimilt að flytja eignarhald að Sjóvinnu að hluta eða öllu leyti til þriðja aðila ásamt öllum þeim upplýsingum sem Sjóvinna hefur að geyma, án samþykkis notanda. Sama gildir um hvers konar önnur lagaleg eigendaskipti að Sjóvinnu ehf. Yfirfærsla eignarhalds eða önnur lagaleg eigendaskipti að því er varðar Sjóvinnu, að hluta eða öllu leyti, hefur engin áhrif á skilmálana eða samninginn við notandann með tilliti til gildissviðs og skilvirkni þjónustu. Yfirfærist eignarréttur að Sjóvinnu skal litið á tilvísun til Sjóvinnu ehf. í skilmálunum sem tilvísun til nýs eiganda Sjóvinnu.

13. ÚRLAUSN ÁGREININGS

1. Komi upp ágreiningur á sviði neytendamála milli Sjóvinnu ehf. og notanda vegna samnings um sölu eða þjónustu sem ekki verður leystur milli aðila með samkomulagi getur notandi vísað ágreiningnum til úrlausnar utan dómstóla með kvörtun til Neytendastofu eða með málsmeðferð á netinu gegnum rafræna
vettvanginn, sbr. lög nr. 81/2019.

14. GILDANDI LÖG OG LÖGSAGA

1. Öll réttindi og allar skyldur aðila sem tengjast notkun á Sjóvinnu eða skilmálunum fara samkvæmt íslenskum lögum.
2. Rísi ágreiningsmál milli aðila vegna notkunar á Sjóvnnu og/eða vegna skilmálanna skal slíku máli ráðið til lykta fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur nema annað sé tekið fram.

15. TUNGUMÁL

1. Skilmálarnir eru á íslensku og ensku. Öllum skyldum Sjóvinnu ehf. gagnvart notanda sem tengjast skilmálunum skal fullnægt á íslensku eða ensku samkvæmt eigin vali Sjóvinnu ehf. Ef misræmi er milli tungumálaútgáfa skal íslenski textinn ráða.

16. SAMSKIPTI

1. Öll samskipti milli aðila skulu vera á íslensku eða ensku, einkum rafrænt, í gegnum Sjóvinnu, tölvupóst eða tengiliði á heimasíðu Sjóvinnu ehf.

2. Kveði einhver ákvæði skilmálanna eða ákvæði laga sérstaklega á um að vera skrifleg, er slíkt skriflegt form ekki nauðsynlegt ef Sjóvinna ehf. hefur gert ráðstafanir gagnvart notanda á tölvupóstfang hans eða síma með einföldum rafrænum undirskriftum eða í gegnum Sjóvinnu.

17. GILDISTÍMI

1. Skilmálarnir eru gefnir út af Sjóvinnu ehf. og gilda frá 1. október 2021